
Gunnar sigraði í fyrstu lotu...
Bardagakappinn Gunnar Nelson sneri aftur í hringinn á UFC 286 bardagakvöldinu í London í kvöld og sigraði Bandaríkjamanninn Bryan Barberena.
Bardaginn endaði með uppgjafartaki í fyrstu lotu, nánar tiltekið með armlás.
Fyrir bardagann töldu vaðbankar Gunnar talsvert sigurstranglegri en Barberena.
Líkt og áður segir fór bardaginn fram í London, nánar tiltekið í O2-höllinni.