Forstjóri Boeing verður tekinn á beinið í öldungadeildinni...
Líklegt þykir að Dave Calhoun, forstjóri Boeing flugvélaverksmiðjanna, muni eiga í vök að verjast frammi fyrir rannsóknarnefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings í dag.Hér má sjá gat á skrokki Boeing vélar eftir að hleri rifnaði brott í flugtaki.ASSOCIATED PRESS / National Transportation Safety BoardCalhoun verður látinn svara spurningum um öryggisvanda fyrirtækisins, mistök við framleiðslu og meintar ógnanir í garð þeirra sem hafa reynt að ljóstra upp um vandamál innan fyrirtækisins. Opnunarræða Calhouns hefur verið birt, þar sem hann segist gera sér grein fyrir vandanum en að Boeing ætli sér að auka gegnsæi og ábyrgðVerkfræðingur hjá Boeing sagði nefndinni í apríl að honum hefði verið refsað fyrir að vekja máls á því að öryggi Dreamliner og 777 þotnanna gæti verið ábótavant. Í janúar losnaði hleri sem lokar ónýttum neyðarútgangi MAX þotu losnaði þannig að stórt gat kom á skrokk vélarinnar.Öryggisnefnd samgöngumála hóf rannsókn og fyrirskipaði að nokkrar MAX þotur skyldu kyrrsetar á meðan. Í næsta mánuði verður endanlega ákveðið hvort Boeing sætir málsókn fyrir að hafa brotið gegn samkomulagi gerðu eftir að tvær MAX vélar fórust 2018 og 2019.Þingmaðurinn Richard Blumenthal segir komið að ögurstundu hjá Boeing sem hafi svikið loforð gert fyrir fimm árum um að bæta öryggi og vinnustaðamenningu. Fyrirtækið hefði sett framleiðsluhraða og ágóða fram fyrir öryggi, sem hefði kostað mannslíf og valdið hættu. …