Gjasula allt í öllu þegar Króatía og Albanía skyldu jöfn
Gjasula allt í öllu þegar Króatía og Albanía skyldu jöfn...

Fyrsta leik dagsins á EM í fótbolta er lokið en þar gerðu Albanía og Króatía 2-2 jafntefli en liðin leika í B-riðli keppninnar ásamt Ítalíu og Spáni. Líkt og í fyrsta leik Albana á mótinu, gegn Ítalíu byrjuðu þeir af miklum krafi og komust yfir strax á 11. mínútu leiksins þegar miðjumaðurinn Qazim Laçi kom þeim yfir með góðu marki.Króatar komu hins vegar af krafti inn í seinni hálfleik og náðu að jafna metin þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum, þegar Andrej Kramarić skoraði laglegt mark. Tveimur mínútum síðar tóku þeir svo forustuna þegar Klaus Gjasula varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Allt leit út fyrir að sjálfmark Gjasula yrði sigurmarkið í leiknum en Gjasula var ekki á þeim buxunum. Hann jafnaði leikinn þegar komið var í uppbótatíma og allt ætlaði um koll að keyra á vellinum. Lokatölur 2-2 í háspennuleik.Klaus Gjasula fagnar með félögum sínumEPALeikir dagsins16:00 Þýskaland – Ungverjaland – Upphitun í EM stofu frá 15:3019:00 Skotland – Sviss – Upphitun í EM stofu frá 18:30