Glæða Tónabíó nýju lífi
Glæða Tónabíó nýju lífi...

Margir þekkja eflaust Vinabæ í Skipholti í Reykjavík. Þar var spilað Bingó í árafjöld, allt til ársins 2022, en áður var þar kvikmyndahúsið Tónabíó. Nú er aftur komið líf í þetta fornfræga félagsheimili og með haustinu stendur mikið til.Valdís Eiríksdóttir og Kristján Freyr Halldórsson ræddu við Sigurð Pétur Snorrason, sem stendur fyrir því að húsið gangi í endurnýjun lífdaga, í Síðdegisútvarpinu á Rás 2.Stysta skrúðganga lýðveldisinsRVK Bruggfélag hefur haldið úti rekstri í Skipholti 31 undanfarin sex ár. Það hefur nú fært sig um set yfir í Tónabíó við Skipholt 33. „Við erum með bruggstofu í kjallara hússins, viðbyggingu Tónabíós, og ætlum að selja okkar bjór uppi í anddyrinu þar sem áður var poppkornssala,“ segir Sigurður Pétur. „Það er opið núna en síðan erum við að opna sjálfan bíósalinn vonandi seinna í sumar eða haust.“Gömlu bruggstofunni var lokað á föstudagskvöldið og var andi hennar fluttur yfir í þá nýju með lúðrasveit og gleði. Sigurður Pétur telur að það sé stysta skrúðgangan í sögu lýðveldisins.Ætla að gera marga góða hlutiSigurður Pétur segist viss um að í þessu húsi eigi þeir félagar eftir að gera marga góða hluti. „Þetta byrjaði sem bíó ‘63 og var starfandi í 25 ár, til ‘88. Það varð síðan Vinabær, bingóhöll, frá ‘90-2022. Í rauninni var starfsemi bingósins lengur en bíósins. En ég er nú kannski af þeirri kynslóð sem man eftir að hafa farið þarna í bíó.“ Þarna sá hann til að mynda James Bond-myndirnar og Rokk í Reykjavík. „Það er búið að vera mikið um góðar myndir þarna.“Stefnan er að halda úti alls konar viðburðum í Tónabíói, þar á meðal bíósýningum, tónleikum og uppistandi. Þarna er lítið svið sem hentar því miður ekki vel til leiklistar enda er ekkert baksvið þar. „Það er samt hægt að gera þarna marga skemmtilega hluti og við ætlum kannski bara að leggja höfuðið í bleyti næstu vikurnar og sjá hvað við ætlum að vera með þarna í framtíðinni.“Ekki skortur á hæfileikaríku tónlistarfólkiSegja má að í Skipholti sé uppspretta tónlistar þar sem bæði Menntaskólinn í tónlist og Listaháskóli Íslands eru í sama húsi og næsta húsi við Tónabíó. „Það verður ekki skortur á hæfileikaríku fólki til að koma fram og vera með skemmtilega tónlist,“ segir Sigurður Pétur.Tónabíó hefur fengið miklar og góðar undirtektir nágranna við þetta nýja líf þar sem fólk þyrstir í góða skemmtun. „Viðtökurnar hafa verið mjög góðar, við opnuðum á þriðjudaginn og það er búið að vera mikið að gera hjá okkur alveg síðan,“ segir Sigurður Pétur. Það er því til mikils að hlakka með komandi hausti þegar öll leyfi verða komin í hús.Rætt var við Sigurð Pétur Snorrason í Síðdegisútvarpinu á Rás 2. Viðtalið má finna í spilaranum hér fyrir ofan.