NASA gefur grænt ljós á sendingu drónaþyrlu til Títans...

Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna staðfestu á dögunum að áfram stæði til að senda þyrludróna til Títan, tungls Satúrnusar. Þyrludróni þessi er á stærð við lítinn bíl og kallast Drekafluga (Dragonfly) en hann á meðal annars að nota til að leita lífrænna sameinda og mögulegra ummerkja lífs.