Sendi ösku í allt að þriggja kíló­metra hæð...

Hundruð manna hafa þurft að flýja heimili sín og loka þurfti flugvelli á svæðinu þegar Ruang-eldfjallið í Indónesíu gaus í gær. Eldfjallið sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð en einnig þurfti að rýma nærliggjandi sjúkrahús, auk heimila, þegar grjót og aska úr eldfjallinu byrjaði að lenda á þökum húsanna.