Ætla að klára að velja í kviðdóm í máli Trumps í dag...

Dómarinn í sakamálinu gegn Donald Trump vonast til að klára að skipa sex kviðdómendur í dag sem verða til vara fyrir þau tólf sem þegar hafa verið skipuð í kviðdóminn.Þannig verði allt til reiðu til að hefja aðalmeðferð málsins í næstu viku,Trump, sem verður að öllum líkindum í frambjóðandi Repúblikanaflokksins í forsetakosningunumn í haust, er ákærður í 34 liðum fyrir að falsa fjármálaupplýsingar í þeim tilgangi að hylma yfir mútugreiðslur vegna framhjáhalds.Í aðdraganda kosninganna 2016 lét Trump þáverandi lögmann sinn, Michael Cohen borga klámmyndaleikkonunni Stormy Daniels fyrir að tjá sig ekki um kynferðissamband þeirra á milli áratug áður.Talsverður tími hefur farið í að velja í kviðdóm, enda þurfa viðkomandi að treysta sér að láta ekki persónulegar skoðanir sínar á Trump, ef þeim er til að dreifa, hafa áhrif á niðurstöðu sína þegar komur að því að ákvarða sekt hans eða sakleysi.