Kveikti í sér utan við dómshús á Manhattan...

Karlmaður kveikti í sér fyrir utan dómshúsið á Manhattan í New York þar sem mál Donalds Trump er tekið fyrir í dag.Á myndum á fréttamiðlum og samfélagsmiðlum sést manneskja í ljósum logum leggjast á gangstétt þar sem menn ruku að og sprautuðu á hann með slökkvitæki.Lögregla staðfesti að maðurinn hafi gengið inn í almenningsgarð gegnt dómshúsinu þar sem hann dró eitthvað úr bakpoka og kveikt í sér.Þetta atvik var að eiga sér stað, og er ekki vitað um ástand mannsins eins og er, en viðbragsðaðilar voru komnir til að hlúa að manninum.Í þessum garði hefur lögregla vísað mótmælendum og fjölmiðlafólki sem fylgist með dómsmálinu gegn Trump. Fréttin verður uppfærð