Amanda með tvö í Valssigri...

Íslandsmeistarar Vals unnu opnunarleik Bestu deild kvenna í fótbolta rétt í þessu. Leikar enduðu með 3-1 sigri Vals á Hlíðarenda þar sem Amanda Andradóttir skorað tvisvar gegn Þór/KA.Mörkin komu á þriggja mínútna tímabili. Amanda kláraði vel í teignum á 24. mínútu eftir stoðsendingu Önnu Bjarkar Kristjánsdóttir. Hún skoraði svo annað mark sitt með föstu skoti fyrir utan teig. Fanndís Friðriksdóttir fann Amöndu fyrir utan teig og Harpa Jóhannsdóttir kom engum vörnum við í marki KA/Þór.Jasmín Erla Ingadóttir gerði svo endanlega út um leikinn er hún vippaði boltanum í netið á 70. mínútu leiksins. Fyrirliðinn Sandra María Jessen skoraði sárabótamark fyrir gestina undir lokin.Valskonur fara því vel af stað í deildinni í ár. Fyrstu umferð lýkur á morgun með fjórum leikjum.Tindastóll – FH – 17:00Breiðablik – Keflavík – 18:00Stjarnan – Víkingur – 18:00Fylkir – Þróttur – 19:15