Einn úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna líkamsárásar...

Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur úrskurðaði karlmann í gær í síbrotagæslu fram yfir mánaðamót. Hann er einn þriggja sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók vegna líkamsárásar í miðbæ Reykjavíkur upp úr klukkan þrjú í fyrrinótt.Ráðist var á tvo menn sem flytja þurfti á slysadeild vegna meiðsla sem þeir urðu fyrir. Árásarmennirnir voru á bak og brott þegar lögreglan kom á vettvang. Lögreglumenn báru hins vegar kennsl á þrjá menn á myndbandsupptökum sem þóttu hafa sig mest í frammi og voru þeir allir handteknir áður en nóttin var öll. Tveimur þeirra hefur verið sleppt.Rannsókn lögreglu er á frumstigi.Öllu rólegra var á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Þó voru nokkur ölvunar-og fíkniefnamál og lögregla handsamaði tvö ungmenni, annað með hnífa á sér og hitt með fíkniefni.Einn var handtekinn eftir að hafa látið öllum illum látum á slysadeild og ráðist á lögreglumenn og öryggisverði.