Forysta Framsóknar endurkjörin...

Forystusveit Framsóknarflokksins var endurkjörin á flokksþingi sem nú stendur yfir. Sigurður Ingi Jóhannsson var endurkjörinn formaður með rúmlega 96 prósentum atkvæða og Lilja Alfreðsdóttir varaformaður með tæplega 90 prósentum atkvæða. Bæði hafa gegnt embættum sínum frá 2016.Ásmundur Einar Daðason var endurkjörinn ritari með rúmlega 95 prósent atkvæða. Þetta verður annað kjörtímabil hans sem ritari.