Framleiðir nýstárlegt fiskisnakk með ýmsum bragðtegundum...

Alda ímyndaði sér líklega ekki að hún ætti eftir að hefja framleiðslu á fiskisnakki þegar hún flutti til Bretlands fyrir rúmlega 30 árum og lét að sér kveða í tónlistarheiminum. Hún saknaði alltaf íslenska harðfisksins og þróaði nýstárlega aðferð til að útbúa sinn eigin þurrkaða fisk. Nú er hún flutt aftur til Íslands og framleiðir fiskiflögur undir merkjum Krispa Fish Snack á Hellu.Fiskiflögurnar eru með ýmsum bragðtegundum og uppáhalds tegund Öldu er þorsksnakk með jalapeno.„Maður á ekki að segja að maður eigi uppáhald af öllum börnunum sínum en stundum er það bara haugalýgi,“ segir Alda og hlær.Landinn heimsótti Krispa Fish Snack á Hellu.