Stærsti jarðskjálfti frá eldgosinu í Holuhrauni...

Jarðskjálfti af stærðinni fimm komma þrír reið yfir í Bárðarbungu klukkan 06:37 í morgun. Þetta er stærsti skjálfti sem mælst hefur í Bárðarbungu frá því að eldgosinu í Holuhrauni lauk árið 2015 og mældist í austurhluta öskjunnar. Nokkrir minni eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið. Stærstur þeirra mældist 2,5.Engar tilkynningar hafa borist um að skjálftinn hafi fundist í byggð.„Það er mjög algengt að það komi stórir skjálftar í Bárðarbungu en þetta er í stærra lagi,“ sagði Jóhanna Malen Skúladóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við fréttastofu í morgun. Hún segir síðasta stóra skjálfta hafa riðið yfir 18. mars og hafi mælst 4,4 að stærð.Verið sé að yfirfara gögnin frekar og frekari upplýsingar munu liggja fyrir þegar búið er að fara yfir þau með sérfræðingum í dag.Fréttin hefur verið uppfærð.