Lýðræði er þema barnamenningarhátíðar...

Barnamenningarhátíð verður sett í dag og er þemað í ár lýðræði. Alls konar viðburðir verða á dagskrá um alla borg – og þeir bæði skipulagðir fyrir börn eða með börnum. Frítt er inn á þá alla. Hátíðin stendur fram á sunnudag. Hátíðin er sett í Hörpu í dag, þar sem nýjasta lag barnamenningarhátíðar er frumflutt.