„Hann hagaði sér eins og lítill krakki“...

Það sauð upp úr undir lok leiks þegar FH-ingurinn Grétar Snær Gunnarsson fékk rautt spjald fyrir grófa tæklingu. Valsarinn Aron Jóhannsson fór hörðum orðum um Grétar eftir leikinn. „Svo kemur Grétar Snær með tæklingu sem á bara að verðskulda margra leikja bann. Hann hefði geta brotið lappirnar á einhverjum. Það er munur að vera með heimskuleg brot eða smá æsing. Greinilega espaðist hann svona upp við þetta að hann hagaði sér eins og lítill krakki á vellinum. Hann var bara heppinn að Adam meiddist ekki alvarlega.“Heimir Guðjónsson þjálfari FH var ekki alveg á sama máli. „Fyrir einu ári síðan hefði þetta bara verið gult spjald.“Nánar er fjallað um alla leiki kvöldsins í fréttavakt íþróttadeildar.