Táknmálstúlkaðar kvöldfréttir...

Rúmlega 140 þúsund tonna skemmtiferðaskip með um fjögur þúsund og sex hundruð manns um borð var hársbreidd frá því að stranda á grynningum við Viðey í fyrra. Fyrir þrautseigju áhafnar dráttarbáts tókst að forða skipinu frá strandi.Skóli án aðgreiningar virkar eins og skóli án afskipta. Þetta segir grunnskólakennari sem segir fjölda erlendra barna sem ekki tala íslensku auka enn álag á kennara – sem var mikið fyrir.TikTok verður bannað í Bandaríkjunum eftir níu mánuði, nái kínverkst móðurfélag ekki að selja fyrirtækið, samkvæmt nýjum lögum.Þingmaður sem var í örorkukerfinu í tæpa þrjá áratugi óttast gildrur í fyrirhuguðu örorkulífeyriskerfi og vill sjá breytingar áður en frumvarpið verður að lögumBorginni hafa borist 80 tilkynningar vegna rottugangs það sem af er ári.