Titilvonir Liverpool hanga á bláþræði eftir tap gegn Everton...

Það virðist vera að fjara undan titilvonum Liverpool sem tapaði í kvöld fyrir Everton, 2-0, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Jarrad Branthwaite kom Everton yfir á 27. mínútu og Dominic Calvert-Lewin bætti seinna markinu við á 58. mínútu.Liverpool er með 44 stig í öðru sæti, þremur stigum á eftir toppliði Arsenal. Manchester City á hins vegar tvo leiki til góða á þau og getur með sigri í þeim náð tveggja stiga forystu á Arsenal á toppnum og fimm stiga forystu á Liverpool þegar fjórum umferðum verður ólokið.Alls fóru fjórir leikir fram í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Manchester United vann 4-2 sigur á Sheffield United, Crystal Palace vann Newcastle 2-0 og Bournemouth vann 0-1 útisigur á Wolves.