Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi...

Prófessor í stjórnmálafræði segir ekkert enn fast í hendi um það hver taki forystu í forsetakapphlaupinu. Halla Hrund mælist nú með mest fylgi en það geti breyst á næstu vikum. Hann segir stefna í mjög spennandi kosningar. Það sé ágalli á kerfi að forseti geti verið kjörinn með lágu hlutfalli atkvæða.