Strangheiðarleg dreifbýlistútta og lopa­peysan í upp­á­haldi...

Lífskúnstnerinn Ingunn Ýr Angantýsdóttir hefur gaman að því hvað tískan getur verið óútreiknanleg. Hún er tveggja barna móðir búsett í Ólafsvík og lýsir sjálfri sér sem strangheiðarlegri dreifbýlistúttu á Snæfellsnesi. Ingunn Ýr er með einstakan og glæsilegan stíl en hún er viðmælandi vikunnar í Tískutali.