Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna...

„Hann er klókur. Og hann er rosalega bíræfinn í því sem hann ætlar sér,“ segir Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn á alþjóðasviði ríkislögreglustjóra og á þar við Sverri Þór Gunnarsson, eða Svedda tönn, sem nú bíður dóms í Brasilíu fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot á alþjóðavísu og skipulagða glæpastarfsemi.