Stjarnan í undanúrslit eftir nauman sigur í oddaleiknum...

Haukar og Stjarnan mætttust í oddaleik í átta liða úrslitum Íslandsmóts kvenna í körfubolta í kvöld en bæði lið höfðu unnið tvo leiki til þessa. Leikið var á Ásvöllum og gestirnir voru sterkari í fyrsta leikhluta og leiddu að honum loknum 10-23. Haukar söxuðu á forskot Stjörnunnar í öðrum leikhluta og 7 stigum munaði í hálfleik 32-39 Stjörnunni í vil.Stjarnan var svo áfram með yfirhöndina fyrir lokaleikhlutann og leiddi þá með 13 stigum 45-58. En Haukakonur settu hins var allt í botn í lokafjórðungnum og komust yfir á lokakaflanum. Það dugði þó ekki till því Stjarnan komst yfir á nýjan leik og vann að lokum 73-75 og er á leið í undanúrslitin.