Tveir létust í umferðarslysi í Eyjafirði...

Tveir létust í alvarlegu umferðaslysi á Eyjafjarðarbraut eystri, skammt norðan við Laugaland klukkan 13:00 í dag. Bifreið fór út af veginum og voru farþegar hennar úrskurðaðir látnir á vettvangi.Í tilkynningu lögreglunnar um umferðarslysið segir að tveir hafi verið í bílnum sem hafnaði utan vegar. Báðir sem voru í bílnum voru úrskurðaðir látnir á vettvangi.Slysið átti sér stað ekki svo langt frá Akureyri. Lögreglan á Norðurlandi eystra fer með rannsókn á málinu og er hún á frumstigi. Lögregla segir að hún muni ekki veita frekari upplýsingar um slysið að svo stöddu.